1. |
Ský
04:34
|
|||
Yfir huga mínum
Hvíla þung ský
Ekki er í augsýn
Að rofi til sólar
Aska og brunarústir
Þekja þessa auðn
Ekkert mun tendra þetta bál á ný
Gráminn yfirtekur
Sólarljós brennir
Skugginn mín sáluhjálp
Augun sjá ekkert
Og vitsmunir bugast tilfinningum
Ég kemst ekki burt
Auðnin er heltekin ljósi
Skerandi, öskrandi ljósi
Sjóndeildarhringurinn dregst nær og nær
Uns endimörkin kippa undan mér fótunum
Ég flýt í lausu lofti...
Öllu er lokið
Dreginn á löppunum
Enginn andardráttur...
Gegnum tómið
Enginn hjartsláttur...
Sama hvert ég er dreginn
Munu augun ekki upp ljúkast
Ekkert bál tendrast
Öllu er lokið
|
||||
2. |
Sjálfsmynd dauðleikans
04:13
|
|||
Í upphafi
Í enda
Í spíral
Áfram… og áfram
Í fagurskreyttum
Gullrömmuðum spegli
Varpast dauðleikinn
Áfram… og áfram
Í hendingskasti
Blasir við
Hugmyndin um fegurð
Ódauðleikans
Násjón
Um aldir alda
Óbilandi sorg
Áfram… og áfram
Í fjarlægu árþúsundi
Visnar hið síðasta blóm
Og signar sig
Í fagurskreyttum
Gullrömmuðum spegli
Í hinsta sinn
|
||||
3. |
||||
Úti leika bjartir geislar sólar
Inni hvílir þungt yfir
Í draumum mínum ég drukkna
Í regni elds og brennisteins
Í doðasvefni
Milli tveggja heima
Glitrandi skýjaverur
Gagnsæar svífa um
Hvíslið órætt
En meiningin skýr
Brosandi kyssa
Júdasarkoss
Á milli tveggja heima
Nístandi, sökkvandi, kafnandi
Í regni elds og brennisteins
Ég drukkna nú
|
||||
4. |
Á vit tilgangs
04:04
|
|||
Heilinn minn ferðast á ljóshraða
Í leit að heimsmynd
Sem meikar einhvern sens
Er rökkva tekur
Birtast stjörnur ein af annarri
Og mér verður ljóst
Að sá sem snýr baki í ljósið
Sér aðeins skuggann af sér sjálfum
Og þegar á toppinn er komið
Er engan tind lengur að sjá
|
Projekt NÖIR Portugal
Projekt NÖIR is considered as an avant-garde and post black/dark metal project, formed late 2014 in
Portugal.
Singed with Icelandic words and voice of Jóhann Örn, vocalist from the Icelandic black metal band Dynfari.
The debut CD " Ský " will be out soon in digital format and digipack CD, limited to only 100 copies, and distributed by Fatsound.productions.
... more
Streaming and Download help
If you like Projekt NÖIR, you may also like:
Bandcamp Daily your guide to the world of Bandcamp